Monday, July 30, 2012
Hvíldin er mikilvægari en æfingin
Tók þrjár 1 klst + sjósundæfinga í röð, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag í siðustu viku. Á föstudaginn fann ég fyrir hálsbólgu og ætlaði að hressa mig við með því að fara í sjóinn enda frábærar aðstæður, 17° hiti og sól. Var stutt, 20 mín og mér fannst hálsbolgan renna í burt. Hinsvegar um kvöldið var ég kominn með hita+kvef og alla helgina var ég hálf slappur og þreyttur. Er að braggast núna. Skelli mér í sundlaugina í dag og svo aftur í sjóinn á morgun (þriðjudag). Eitt sem má læra af þessu, hvíldin er mikilvægari en æfingin.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment